Ljósmyndir til sölu

Sumir viðskiptavinir vilja frekar ræða við mig þegar þeir panta mynd. Einfaldasta leiðinn til þess er að hringja í mig í síma 821 4600 og ég tek niður pöntunina sem hægt er að greiða með kreditkorti, paypal eða leggja beint inn á reikning. Einnig er hægt að panta myndir af heimasíðunni og hér fyrir neðan eru verð eftir stærð og frágangi. Þú velur viðeigandi hnapp út frá þeirri stærð og frágang sem þú kýst. Vinsamlegast athugið að Paypal takkarnir eru í dollurum. Þegar ég hef fengið pöntunina sendi ég tölvupóst til að fá upplýsingar um hvaða mynd þú hefur valið eða þú getur einnig sent póst á birgir(hja)birgir.org með upplýsingar um ljósmyndina sem þú vilt fá.

Póstsendingarkostnaður ræðst af því hvert á að senda myndina, upplýsingar um póstsendingakostnað kemur í tölvupósti þegar búið er að ganga frá pöntun. Allir pakkar eru tryggðir og rekjanlegir.


Myndastærðir og verð

Tegund / nafnStærð myndar/kartonsverðMynd með rammastærð mynda ca.
Bleksprautu prentunA4: 21x29,7cm2.900 kr.
4.950 kr.
17x27cm ca.
Bleksprautu prentunA3 29,7x41cm5.700 kr.
7.750 kr.
24x38cm ca.
Gallery Edition - Fuji Archival Paper30x40cm karton9.049 kr.
12.690 kr.
21x33cm ca.
Gallery Edition - Fuji Archival Paper40x50cm karton13.735 kr.
18.100 kr.
24x38cm ca.
Panorama - Fuji Archival Paper50x23cm karton9.150
11.690 kr.
14x42cm ca.
Panorama - Fuji Archival Paper120x46cm karton15.950
21.690 kr.
25x90cm ca.

Ábyrgð

Allar myndir prentaðar frá mér eru merktar að framan og aftan og ef af einhverjum ástæðum myndinn stenst ekki væntingar getur þú sent myndina til baka og ég mun endurgreiða þér söluverðið (án póstsendingarkostnaðar) og gildir þessi ábyrgð sex mánuðum frá því myndin er send af stað. Jafnframnt ef einhverjar skemmdir hafa orðið á ljósmyndinni, kartoni eða ramma í flutningi máttu senda hana til baka og ég sendi þér nýja án nokkurs auka kostnaðar.

Ending mynda

Ending mynda
Myndir prentaðar á Fuji Archival pappír ætti að endast 70 ár eða lengur áður en einhver dofnun kemur fram. Bleksprautu prentanir eru hágæða ljósmyndaprentanir og notaður er mattur pappír og ætti að endast svipað og Fuji Archival pappírinn.